Heim Verkefni Um mig Hafðu samband EN

Renata
Blöndal

Takk fyrir áhugann! Hér finnurðu upplýsingar um hvað ég hef verið að fást við á mínum starfsferli.

Örlítið um mig, ég er reynslumikill stjórnandi með bakgrunn í tækni og rekstri sem einnig hefur nýst mér vel til að ná árangri í sölu og þjónustu. Ég er markaðsþenkjandi og liggja styrkleikar mínir í að skapa skýra sýn á sameiginlegan árangur, setja metnaðarfull markmið og varða leiðina til þess að þeim markmiðum sé náð. Ég hef lag á að gera flókna hluti einfalda og get kafað á dýptina þegar kemur að hvers konar greiningum, gögnum, tækni og gervigreind. Þá hef ég einnig reynslu í að leiða stór umbreytingarverkefni og á sama tíma tryggja núverandi rekstur og þjónustustig. Ég brenn fyrir að stilla teymum upp til árangurs með því að skapa drífandi kúltúr sem einkennist af gleði og metnaði.

Ég trúi því að fyrirtæki geti verið afl til góðs og að stærð fylgi ábyrgð. Í gegnum starfsferil minn hef ég leitast við að leiða og taka þátt í þessari umræðu, knýja fram breytingar og styðja við fjölda sjálfbærniverkefna.

Renata Blöndal
01

Verkefni

Nova
Stefnumótun, viðskiptaþróun og gervigreind

Nova - COO

Stýrði stefnumótun og framkvæmd þvert á félagið og tryggði samræmi við markmið fyrirtækisins. Leiddi teymi viðskiptaþróunar og þjónustu, alls 50 manns, með áherslu á metnaðarfull markmið og ánægju starfsfólks. Endurhannaði verkferla og samhæfingu teyma sem skilaði aukinni framleiðni og fyrirsjáanlegri afhendingu á vörum og þjónustu. Stýrði sjálfvirknivæðingu og innleiðingu gervigreindar til að auka rekstrarhagkvæmni og ánægju viðskiptavina.

Mælanlegur árangur í ánægju viðskiptavina, ánægju starfsfólks, þjónustusölu, fjölda snertinga við viðskiptavini og endurgreiðslum, sem og í sölu raftækja, birgðum og framlegð.

Arctic Adventures
Vörumerkjastjórnun, viðskiptaþróun og vöxtur

Arctic Adventures - CSO

Byggði upp sölu- og markaðsteymi frá grunni og innleiddi gervigreind í þjónustuferlum ásamt sölukerfi fyrir sérsniðnar ferðir til að styðja við hraðan vöxt félagsins eftir heimsfaraldur. Tók þátt í endurmörkun á vörumerkjum Arctic Adventures og Into The Glacier. Skilaði árangri í sölu, ánægju viðskiptavina og starfsánægju.

Krónan
Framtíðarsýn, stafræn þróun og breytingastjórnun

Krónan - VP Viðskiptaþróun

Mótaði framtíðarsýn Snjallverslunar Krónunnar frá grunni og bar ábyrgð á öllu umfanginu — frá áætlanagerð og samningum til hönnunar, innleiðingar og framkvæmdar. Vörunni var ætlað að umbylta upplifun viðskiptavina af matvöruinnkaupum og bæta daglegt líf fólks. Þá leiddi ég einnig samningaviðræður og innleiðingu á sjálfsafgreiðslulausn Krónunnar.

Landsbankinn
Breytingastjórnun, Sjálfvirknivæðing og Google design sprints

Landsbankinn - Ferlaþróun

Skilgreindi virðisaukandi stafræn verkefni og leiddi innleiðingu ma. með Google design sprint aðferðafræðinni. Helstu verkefni voru að nýskrá í viðskipti í appinu fyrst allra banka og stofna vörslureikning í appinu. Greindi tækifæri til sjálfvirknivæðingar og tók þátt í innleiðingu.

Meniga
Gervigreind, markaðsgreiningar, vörustjórnun

Meniga - Gagnagreining

Framkvæmdi markaðsgreiningar út frá neyslugögnum viðskiptavina og kynnti fyrir framkvæmdastjórnum fyrirtækja. Þróaði nýja gervigreindarvöru sem mælir með tilboðum byggt á gervigreind.

CCP Games
Gæðastjórnun, verkefnastjórnun og vefsíðugerð

CCP Games - Scrum Master og QA

Var hluti af vefteymi CCP eftir útskrift úr verkfræðinni í HÍ. Þar sinnti ég hlutverki Scrum Master og prófara fyrir ólík vefteymi.

Stjórnarsetur og önnur störf

02

Um mig

Ég ólst upp á sveitabæ á Snæfellsnesi þar sem ég tók virkan þátt í búskap og hestarækt fjölskyldunnar. Verkefnin í sveitinni voru af ýmsum toga og þurfti ég ma. að skúra Malarrifsvita, leysa hásetann af í útgerð fjölskyldunnar, bera fiskisúpu á borð fyrir gesti Fjöruhússins og reka hestastóð yfir miðhálendið fyrir Landsmót hestamanna. Ég flutti til Reykjavíkur til að fara í MR og kynntist þar manninum mínum Óskari Inga sem starfar sem fjármálastjóri Beru og saman eigum við þrjú börn. Ég útskrifaðist með B.Sc í iðnaðarverkfræði úr HÍ og Management Science and Engineering úr Columbia University. Með háskóla unnum við hjónin við að sinna fötluðum börnum í sumarbúðum og vetrardvölum í Reykjadal ásamt liðvörslu yfir veturinn.

Snæfellsnes

Áhugamál

landscape
Fjallgöngur og útivist
downhill_skiing
Skíði og fjallaskíði
gesture
Prjón
menu_book
Lestur
flight
Ferðalög
smartphone
Vöruþróun
04

Hafðu samband